Mjög huggulegt 4* hótel í miðborg Manchester. Á hótelinu er afar góður veitingastaður og flottur bar. Öll herbergi eru með sér baðherbergi, sjónvarpi, síma, minibar, hárþurrku og öryggishólfi. Innifalið í verðinu á þessu hóteli er glæsilegt Marriott morgunverðarhlaðborð.